Steingrímur Bókaðu verðmat
Litrík hús og þök í Reykjavík séð ofan frá, haf í baksýn Mynd: Unsplash

Spurt og svarað

Algengar spurningar um sölu og kaup fasteigna.

Að selja

Hvað kostar að selja íbúð?

Helsti kostnaðurinn er söluþóknun fasteignasalans, sem er yfirleitt hlutfall af söluverði að viðbættum virðisaukaskatti, auk gagnaöflunargjalds. Um þóknunina er samið í söluumboði og hún greiðist við kaupsamning, ekki fyrirfram. Auk þess greiðir seljandi uppgreiðslu lána og mögulegt uppgreiðslugjald bankans. Ég fer yfir kostnaðinn með þér í verðmatinu.

Tengill á þessa spurningu

Þarf ég að borga skatt þegar ég sel íbúðina mína?

Yfirleitt ekki. Hagnaður af sölu íbúðarhúsnæðis er skattfrjáls ef þú hefur átt eignina í tvö ár eða lengur og íbúðarhúsnæði þitt er innan við 600 m³ (1.200 m³ hjá hjónum). Ef þú selur innan tveggja ára er hagnaðurinn skattskyldur, en hægt er að fresta skattinum ef þú kaupir aðra íbúð innan tiltekins tíma. Fáðu staðfestingu hjá Skattinum eða endurskoðanda í þínu tilviki.

Tengill á þessa spurningu

Hvað er eignin mín mikils virði?

Verðmat byggir á nýjustu kaupsamningum í hverfinu, stærð, ástandi og staðsetningu. Fasteignamat er ekki það sama og söluverð, því það miðar við verðlag árið áður. Bókaðu verðmat og ég hef samband innan sólarhrings.

Tengill á þessa spurningu

Hvað tekur langan tíma að selja?

Það fer eftir eign, verði, hverfi og stöðu markaðarins hverju sinni. Það sem skiptir alltaf mestu er rétt verð frá fyrsta degi, því flestir áhugasamir kaupendur sjá eignina fyrstu vikuna. Ég fer yfir nýjustu tölur um sölutíma í þínu hverfi í verðmatinu, og þær eru líka í markaðsbréfinu.

Tengill á þessa spurningu

Get ég selt sjálfur, án fasteignasala?

Já, þú mátt selja þína eigin eign sjálfur. Þá berð þú sjálfur ábyrgð á söluyfirliti, upplýsingaskyldu um galla, kaupsamningi, afsali og uppgjöri við banka og kaupanda. Löggiltur fasteignasali sér um þetta, er tryggður fyrir mistökum og gætir hagsmuna beggja aðila.

Tengill á þessa spurningu

Einkasala eða almenn sala?

Í einkasölu er eignin aðeins hjá einni fasteignasölu, sem getur þá lagt meira í markaðssetningu (ljósmyndun, auglýsingar, opin hús). Í almennri sölu má hún vera hjá fleiri sölum í einu. Flestar eignir eru seldar í einkasölu.

Tengill á þessa spurningu

Hvaða gögn þarf ég til að selja?

Það eina sem þú fyllir út sjálf(ur) er ástandsyfirlýsing seljanda. Teikningar, upplýsingar um áhvílandi lán, veðbókarvottorð og önnur opinber gögn er hægt að sækja á netinu, og fasteignasalinn aflar þeirra ásamt húsfélagsyfirlýsingu.

Tengill á þessa spurningu

Hvaða galla þarf ég að segja frá?

Allt sem þú veist um og kaupandi mætti búast við að fá að vita, til dæmis leka, raka, myglu eða fyrri viðgerðir. Það verndar þig: galli sem var upplýst um getur kaupandi ekki borið fyrir sig eftir á.

Tengill á þessa spurningu

Hvað þarf ég að gera áður en eignin fer á sölu?

Yfirleitt ekki stórar endurbætur. Laga smáatriði, taka til, fækka persónulegum munum og fá góðar myndir. Fyrsta vikan á markaði skiptir mestu, svo eignin á að vera tilbúin þegar hún fer á netið.

Tengill á þessa spurningu

Þarf ég að selja áður en ég kaupi?

Ekki endilega. Hægt er að gera kauptilboð með fyrirvara um sölu á eign. Á kaupendamarkaði er þó yfirleitt hagstæðara að selja fyrst: þá veistu hvað þú færð fyrir eignina og tilboð án fyrirvara er sterkara. Gott er að skipuleggja greiðslur og afhendingu beggja eigna saman frá byrjun.

Tengill á þessa spurningu

Hvað verður um lánið mitt þegar ég sel?

Lánið er yfirleitt greitt upp af söluverðinu við kaupsamning eða afsal. Sum lán bera uppgreiðslugjald, athugaðu skilmálana. Í sumum tilvikum getur kaupandi yfirtekið lán ef bankinn samþykkir.

Tengill á þessa spurningu

Get ég selt minn hlut í fasteign?

Já, en fáir kaupendur vilja eiga hlut á móti ókunnugum, svo oftast er hluturinn seldur meðeiganda. Ef ekki næst samkomulag eru til lagaleiðir til að slíta sameign. Gott er að fá ráð snemma.

Tengill á þessa spurningu

Get ég hætt við sölu?

Já. Söluumboði má segja upp með 30 daga fyrirvara. Þá greiðist áfallinn kostnaður samkvæmt verðskrá.

Tengill á þessa spurningu

Seljið þið sumarbústaði og jarðir?

Já. Sumarhús og frístundahús eru seld eins og aðrar eignir, en kaupendur spyrja meira um lóðarleigu, vatn, vegi og hvort megi búa þar. Jarðir og spildur eru á jardasalan.is.

Tengill á þessa spurningu

Að kaupa

Ertu að leita að eign? Skoðaðu líka kaupgatt.is.

Hvað þarf ég að eiga mikið til að kaupa?

Að jafnaði 20% af kaupverði, 15% við fyrstu kaup, og standast greiðslumat banka.

Tengill á þessa spurningu

Hvaða kostnaður bætist við kaupverðið?

Stimpilgjald 0,8% (0,4% við fyrstu kaup), þinglýsingargjöld og lántökugjald. Gott er að gera ráð fyrir 1–2% af kaupverði.

Tengill á þessa spurningu

Má ég nota séreignarsparnaðinn?

Já, samkvæmt gildandi reglum. Við fyrstu kaup má nota allt að 500.000 kr á ári á mann, skattfrjálst, í allt að 10 ár. Reglurnar hafa breyst áður, svo athugaðu stöðuna á island.is áður en þú gerir ráð fyrir þessu.

Tengill á þessa spurningu

Fannstu ekki svarið?

Sendu mér línu á steingrimur@husaskjol.is, eða bókaðu verðmat og við förum yfir þína stöðu.

Bókaðu verðmat