Persónuvernd

Hvernig ég fer með upplýsingarnar sem þú sendir mér í gegnum verðmatsformið.

Þessi texti er í vinnslu og verður uppfærður.

Hvað er skráð

Nafn, sími og/eða netfang, heimilisfang eignar, hvenær þú hyggst selja og skilaboð — aðeins það sem þú fyllir út. Auk þess hvaðan þú komst á síðuna (t.d. auglýsing eða tengill) og hvort þú baðst um markaðsbréf.

Til hvers

Til að hafa samband við þig vegna verðmatsins, á grundvelli samþykkis þíns. Markaðsbréf færðu aðeins ef þú hakaðir við það, og þú getur afþakkað það hvenær sem er.

Hverjir sjá upplýsingarnar

Aðeins ég. Þær eru aldrei seldar eða afhentar öðrum. Þær eru geymdar hjá hýsingaraðilum sem vinna þær fyrir mig (Vercel og Neon), og tilkynning um nýja beiðni sem berst í símann minn ber engar persónuupplýsingar.

Réttindi þín

Þú getur hvenær sem er beðið um að sjá upplýsingarnar, láta leiðrétta þær eða eyða þeim, og beðið mig um að hafa ekki samband aftur. Þú getur líka leitað til Persónuverndar.

← Aftur á verðmatsformið