Steingrímur Bókaðu verðmat
Steingrímur Þór Ágústsson, löggiltur fasteignasali

Að selja fasteign.

Ég er löggiltur fasteignasali og fer með þér í gegnum söluna, frá verðmati að afhendingu.

Bókaðu verðmat

Byggt á nýjustu kaupsamningum í hverfinu. Ég hef samband innan sólarhrings.

Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að svara beiðninni. Sjá persónuverndarstefnu.

Þjónusta

Sala fasteigna

Verðmat, markaðssetning og samningar. Ég sé um söluna frá fyrsta samtali að afhendingu.

Bókaðu verðmat

Kaupendaþjónusta

Fylgd frá leit að lyklum, líka fyrir kaupendur sem búa erlendis.

Hafðu samband

Jarðir og sumarhús

Sala jarða, spildna og sumarhúsa. Jarðir og spildur eru á jardasalan.is.

Skoða jardasalan.is

Fasteignaverð í Grafarvogi

Fasteignir erlendis

Við erum með fasteignir í 33 löndum, mikið í Asíu og þá sérstaklega í Malasíu og á Balí, en líka í Noregi, Bretlandi og víðar um heiminn.

Hafðu samband

Nýjasta markaðsbréfið

Verðið tók við sér í september, en kaupendur hafa enn völdin

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,06% milli mánaða í september. Á höfuðborgarsvæðinu var hækkunin 1,42%. Síðustu þrjá mánuði hefur hækkunin verið um 0,09% á mánuði, svo þetta er klár viðspyrna.

Lesa bréfið

Markaðsbréf · mánaðarlega

Fáðu næsta bréf í pósthólfið.

Verðþróun, kaupsamningar og vextir.

Algengar spurningar

Hvað kostar að selja íbúð?

Helsti kostnaðurinn er söluþóknun fasteignasalans, sem er yfirleitt hlutfall af söluverði að viðbættum virðisaukaskatti, auk gagnaöflunargjalds. Um þóknunina er samið í söluumboði og hún greiðist við kaupsamning, ekki fyrirfram. Auk þess greiðir seljandi uppgreiðslu lána og mögulegt uppgreiðslugjald bankans. Ég fer yfir kostnaðinn með þér í verðmatinu.

Þarf ég að borga skatt þegar ég sel íbúðina mína?

Yfirleitt ekki. Hagnaður af sölu íbúðarhúsnæðis er skattfrjáls ef þú hefur átt eignina í tvö ár eða lengur og íbúðarhúsnæði þitt er innan við 600 m³ (1.200 m³ hjá hjónum). Ef þú selur innan tveggja ára er hagnaðurinn skattskyldur, en hægt er að fresta skattinum ef þú kaupir aðra íbúð innan tiltekins tíma. Fáðu staðfestingu hjá Skattinum eða endurskoðanda í þínu tilviki.

Hvað er eignin mín mikils virði?

Verðmat byggir á nýjustu kaupsamningum í hverfinu, stærð, ástandi og staðsetningu. Fasteignamat er ekki það sama og söluverð, því það miðar við verðlag árið áður. Bókaðu verðmat og ég hef samband innan sólarhrings.

Hvað tekur langan tíma að selja?

Það fer eftir eign, verði, hverfi og stöðu markaðarins hverju sinni. Það sem skiptir alltaf mestu er rétt verð frá fyrsta degi, því flestir áhugasamir kaupendur sjá eignina fyrstu vikuna. Ég fer yfir nýjustu tölur um sölutíma í þínu hverfi í verðmatinu, og þær eru líka í markaðsbréfinu.

Sjá allar spurningar

Steingrímur Þór Ágústsson, löggiltur fasteignasali

Um mig

Ég heiti Steingrímur Þór Ágústsson og er löggiltur fasteignasali og hagfræðingur hjá Húsaskjóli Fasteignasölu. Ég sérhæfi mig í kaupendaþjónustu og sölu hótela, bæði hér heima og erlendis, en sé líka um að selja íbúðir, einbýlishús, jarðir og gistiheimili. Einu sinni í mánuði fer ég yfir markaðinn í markaðsbréfinu.

Meira um mig

Ljósbleikt bárujárnshús með rauðri hurð Mynd: Unsplash

Hvað er eignin þín mikils virði?

Verðmat byggt á nýjustu kaupsamningum í hverfinu.

Bókaðu verðmat

Fleiri leiðir

Húsaskjól Fasteignasala

Fasteignasalan þar sem ég starfa sem löggiltur fasteignasali.

Skoða husaskjol.is